Jæja fólks....
Ég er búin að tala við læknirinn á Reykjalundi og ég á að komast inn vonandi í mars eða í apríl....en það gæti seinkað

....en hann sagði að ef ég er dugleg að hreyfa mig og grenna...(ekki veitir af

)...myndi það vera stór plús fyrir mig....því að ef ég sýni lit þá eru þeir tilbúnir að gera allt fyrir mig....já eða næstum allt

Svo að nú er mín búin ákveða að taka þetta með trompi og breyta um lífstíl

...þessa dagana hef ég verið að taka mataræðið í gegn og keypti þessa fínu bók hjá þeim á Reykjarlundi sem heitir Næringatöflur og í henni er töflur með kaloríunum og öllu því dæmi....við hverja fæðu er stig sem ég ætla að fara eftir....það er búið að reikna út hvað ég að borða mörg stig á dag og eru þau 32 yfir daginn sem skiptist svona...
Morgunmatur 8 stig
Hádegismatur 10 stig
Kaffi 3 stig
Kvöldmatur 9 stig
Kvöldbiti 2 stig
Þetta hefur gengið þokkalega og á ég einna erfiðast að komast yfir að borða þessi stig....þá sérstaklega á morgnana

....en þetta lærist og ég er nú bara búin að vera viku að þessu og hafa komið nokkur svindl

...en ég búin að fara í erfidrykkju með fullt af girnilegum kökum....og stóðst ég ekki mátið

....og svo bauð Elma og Gilsi okkur Hrannari í danska daga

og var á boðstólunum smurbrauð ala Elma....bara gott

...svo var drukkið rauðvín, hvítvín og bjór....

.......
GÓÐA TAPIÐSíðan 5 mars er ég búin að missa
10 kíló
Síðan í endan júní er búin að fjúka
5 kíló....
25 Ágúst til 1 Sept er farið
1 kíló
HREYFING
26/8 göngutúr með Löllu.... ca einn kl ..........ca 4 km
29/8 göngutúr ein.............. ca einn kl ...........ca 4 km
31/8 göngutúr ein............... ca einn kl...........ca 4 km
1/9 göngutúr ein................. 50 mín...............ca 4 km
2/9 göngutúr með Löllu.......einn og 15 mín...ca 6 km
Hér á þessari síðu ætla ég að hafa smá upplýsingar um hvernig gengur...og hvað ég er að gera í sambandi við þennan breytta lífstíl....það er betra að sjá þetta skrifað heldur en að hafa þetta í hausnum

...ég ætla nú ekki að skrifa á hverjum degi heldur að hafa þetta svona mánudagsblogg (þar sem ég ætla að vikta mig á mánudögum)
Þið fáið sko ekki vitað hvað kílóin eru mörg

( enda kemur engum það við) en þið fáið að vita ef einhver kíló fjúka og einnig ef þau koma aftur

Annars er allt gott af okkur að frétta....
Kossar og knús Beta minnkandi